Brúðkaupstilboð 2010

Smellið á tilboðin hér að neðan til að fá nánari upplýsingar.


Tilboð 1

Tilboð 1
Stúdíómyndatökur af brúðhjónum. Innifalið eru 15 myndir í innbundna bók, ásamt DVD diski með öllum myndum myndatökunnar í skjáupplausn til skoðunar í sjónvarpi, ein uppstækkun í ca. 13x18 cm stærð í ramma og heimasíða með öllum myndum myndatökunnar. Heimasíðan er vistuð í tvo mánuði. Stærð bókarinnar er u.þ.b. 21 x 30 cm, prentuð og innbundin hjá okkur. DVD diskurinn inniheldur m.a. sjálfspilandi myndasýningu og hefur verið mjög vinsæll. Myndirnar á diskinum eru ætlaðar til skjáskoðunar og eru ekki í prentupplausn. Tímaviðmið myndatökunnar er ein klukkustund.
Verð: 45.000 -

Innifalið: 15 myndir í innbundinni bók - Ein 13x18 cm uppstækkun í ramma - DVD diskur til skoðunar í sjónvarpi - Heimasíða í 2 mánuði.

30% afsláttur er veittur af aukaeintökum bóka ef pantað er á sama tíma og val mynda í bók er sent til okkar. Fullt verð bókar er 27.500- miðað við 15 mynda bók.
50% afsláttur er veittur af auka eintökum DVD diska ef pantað er á sama tíma. Fullt verð á DVD diski með myndum er kr. 2.900-.
Tilboðið gerir ráð fyrir að viðskiptavinir velji sjálfir myndir í myndabók sína innan þess tíma sem heimasíðan með myndunum er á vefnum.

Tilboð 2

Tilboð 2
Myndatökur af athöfn og brúðarmyndatökur úti eða á myndastofu. Innifalið í myndatöku er gerð heimasíðu með myndunum svo viðskiptavinir geti skoðað allar myndir og leyft vinum og ættingjum að njóta þeirra með því að áframsenda slóð heimasíðunnar. Heimasíðan er vistuð í tvo mánuði. Einnig er innifalin glæsilega hönnuð bók með 75 ljósmyndum sem brúðhjón velja sjálf en grafískur hönnuður fotografika sér um uppsetningu. Bókin er í stærðinni ca. 20 x 25 cm með fallegri áprentaðri hlífðarkápu. Bókin er prentuð erlendis. Hægt er að fjölga myndum í bókina ef fólk vill og kostar þá hver aukamynd kr. 500-. Einnig er innifalinn DVD diskur með öllum myndum myndtökunnar til skoðunar í sjónvarpi og ein uppstækkun í ramma í stærðinni ca. 13x18cm. DVD diskurinn inniheldur m.a. sjálfspilandi myndasýningu og hefur verið mjög vinsæll. Myndirnar á diskinum eru ætlaðar til skjáskoðunar og eru ekki í prentupplausn. Tímaviðmið myndatökunnar eru allt að 3 klukkustundir. Fari heildartími fram yfir það reiknast kr. 20.000- fyrir hverja umframklukkustund.
Kr. 125.000-

Greiða þarf 25.000- kr. staðfestingargjald mánuði fyrir myndatöku. Afgangur greiðist áður en heimasíða með myndum fer í loftið.

Innifalið: 75 myndir í innbundinni bók - Ein 13x18 cm uppstækkun í ramma - DVD diskur til skoðunar í sjónvarpi - Heimasíða í 2 mánuði.

50% afsláttur er veittur af aukaeintökum bóka ef pantað er á sama tíma og val mynda í bók er sent til okkar. Grunnverð bókar er 40.000- miðað við 75 mynda bók.
50% afsláttur er veittur af auka eintökum DVD diska ef pantað er á sama tíma. Grunnverð á DVD diski með myndum er kr. 2.900-.

Akstur til sveitarfélaga utan Reykjavíkursvæðisins er umfram tilboð og reiknast á kr. 60 pr. ekinn kílómeter. Tilboðið gerir ráð fyrir að viðskiptavinir velji sjálfir myndir í myndabók sína innan þess tíma sem heimasíðan með myndunum er á vefnum.

Tilboð 3

Tilboð 3
Myndatökur af athöfn og brúðarmyndatökur úti eða á myndastofu ásamt myndatöku í veislu. Innifalið í myndatöku er gerð heimasíðu með myndunum svo viðskiptavinir geti skoðað allar myndir og leyft vinum og ættingjum að njóta þeirra með því að áframsenda slóð heimasíðunnar. Heimasíðan er vistuð í tvo mánuði. Einnig er innifalin glæsilega hönnuð bók í stóru broti í með 150 ljósmyndum sem brúðhjón velja sjálf en grafískur hönnuður fotografika sér um uppsetningu. Bókin er í stærðinni ca. 20 x 25 cm með fallegri áprentaðri hlífðarkápu. Hægt er að fjölga myndum í bókina ef fólk vill og kostar þá hver aukamynd kr. 500-. Bókin er prentuð erlendis. Einnig er innifalinn DVD diskur með öllum myndum myndtökunnar til skoðunar í sjónvarpi og ein uppstækkun í ramma í stærðinni ca. 13x18cm. DVD diskurinn inniheldur m.a. sjálfspilandi myndasýningu og hefur verið mjög vinsæll. Myndirnar á diskinum eru ætlaðar til skjáskoðunar og eru ekki í prentupplausn. Tímaviðmið myndatökunnar eru 6 klukkustundir. Fari heildartími fram yfir það reiknast kr. 20.000 fyrir hverja umframklukkukstund.
Kr. 215.000-

Greiða þarf 35.000- kr. staðfestingargjald mánuði fyrir myndatöku. Afgangur greiðist áður en heimasíða með myndum fer í loftið.

Innifalið: 150 myndir í innbundinni bók - Ein 13x18 cm uppstækkun í ramma - DVD diskur til skoðunar í sjónvarpi - Heimasíða í 2 mánuði.

50% afsláttur er veittur af aukaeintökum bóka ef pantað er á sama tíma og val mynda í bók er sent til okkar. Grunnverð bókar er 80.000- miðað við 150 mynda bók.
50% afsláttur er veittur af auka eintökum DVD diska ef pantað er á sama tíma. Grunnverð á DVD diski með myndum er kr. 2.900-.

Akstur til sveitarfélaga utan Reykjavíkursvæðisins er umfram tilboð og reiknast á kr. 60 pr. ekinn kílómeter.

Skilmálar

Öll verð miðast við heimilis- og einkanotkun myndanna. Viðskiptavinum er heimilt að birta myndir á heimasíðum sínum án nokkurra tímatakmarka sé það í persónulegum tilgangi, í þeirra eigin nafni og ekki gert í ágóðaskyni. Öll önnur fjölföldun háð leyfi höfundar. Notkun mynda á heimasíðum í ágóðaskyni s.s. fyrir fyrirtæki og aðrar opinberar birtingar mynda eru háðar birtingargjaldi. Birtingargjald er breytilegt eftir umfangi birtingar, þ.e. tegundar fjölmiðils, upplagi, stærð myndbirtingar, tímatakmörkum birtingar o.s.frv.
Óheimilt er skv. höfundalögum að breyta myndum nema fyrir liggi skriflegt leyfi höfundar.
 
Fotografika áskilur sér rétt til að breyta verðskrá án fyrirvara.



Fotografika áskilur sér rétt til breytinga á verðskrá án fyrirvara.