Fotografika er rekið af hjónunum Sigurði Stefáni Jónssyni og Kristínu Þóru Guðbjartsdóttur.
Saman búa þau að áratuga langri reynslu í myndatökum og útlitshönnun.

Sigurður lærði ljósmyndun í School of Visual Arts í New York, öðlaðist meistararéttindi í ljósmyndun árið 1989 og hefur rekið ljósmyndastofu allar götur síðan. Þar að auki hefur hann haldið námskeið í stafrænni myndvinnslu fyrir Ljósmyndarafélag Íslands, Listaháskóla Íslands, Nýa tölvu- og viðskiptaskólann, Margmiðlunarskólann, Tækniskólann og Iðnskólann í Reykjavík. Hann er meðlimur í Ljósmyndarafélagi Íslands og Myndstef.

Kristín er lærður grafíkhönnuður og hefur í meira en áratug unnið hjá nokkrum af helstu auglýsingastofum landsins, auk þess að vinna að eigin verkefnum. Einnig hefur hún lokið námi í ljósmyndun frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hún er meðlimur í Myndstef.



Fotografika er til húsa að Brekkuhúsum 1 í Grafarvogi í Reykjavík. Ath. að aðgengi og inngangur eru frá Völundarhúsum, næstu götu við Brekkuhús.
Opnunartími er skv. samkomulagi. Símanúmer er 692-7633. Sendið fyrirspurnir í netfangið fotografika@fotografika.is.