Fotografika er rekið af hjónunum Sigurði Stefáni Jónssyni og Kristínu Þóru Guðbjartsdóttur.
Saman búa þau að áratuga langri reynslu í myndatökum og útlitshönnun.

Sigurður lærði ljósmyndun í School of Visual Arts í New York, öðlaðist meistararéttindi í ljósmyndun árið 1989 og hefur rekið ljósmyndastofu allar götur síðan. Þar að auki hefur hann haldið námskeið í stafrænni myndvinnslu fyrir Ljósmyndarafélag Íslands, Listaháskóla Íslands, Nýa tölvu- og viðskiptaskólann, Margmiðlunarskólann, Tækniskólann og Iðnskólann í Reykjavík. Hann er meðlimur í Ljósmyndarafélagi Íslands og Myndstef.

Kristín er lærður grafíkhönnuður og hefur í meira en áratug unnið hjá nokkrum af helstu auglýsingastofum landsins, auk þess að vinna að eigin verkefnum. Einnig hefur hún lokið námi í ljósmyndun frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hún er meðlimur í Félagi Íslenskra Teiknara og Myndstef.
 
Verkefni bæði Kristínar og Sigurðar hafa birst í fjölmörgum fjölmiðlum innlendis sem erlendis. Verk þeirra beggja hafa m.a. birtst í hinum virtu hönnunarannálum Graphis.
blocks_image
blocks_image
blocks_image
Fotografika er til húsa að Brekkuhúsum 1 í Grafarvogi í Reykjavík.
Ath. að aðgengi og inngangur eru frá Völundarhúsum, næstu götu við Brekkuhús.
 
Sumaropnun: Lokað í júlí. Ath. þeir sem þurfa að sækja pantanir geta haft samband og sótt skv. samkomulagi.
Símanúmer okkar er 692-7633. Netfang okkar er fotografika@fotografika.is