Fjórir mismunandi valkostir eru í boði varðandi fermingamyndatökur.
Smellið á tilboðin hér að neðan til að fá nánari upplýsingar.


Tilboð 1

Ódýrasta myndatakan sem miðast við að fermingarbarnið eitt sé myndað. Tvær uppstillingar. Tímaviðmið er 20 mínútur. Innifalið í tilboði er ein uppstækkun í ramma í stærðinni ca. 13x18 cm, heimasíða með myndum og hýsing hennar í tvo mánuði. Á þeim tíma veljið þið uppstækkunina og heimasíðan verður síðan tekin niður. Einnig er innifalinn DVD diskur með myndunum til skoðunar í sjónvarpi. DVD diskurinn inniheldur m.a. sjálfspilandi myndasýningu og hefur verið mjög vinsæll í fermingarveislum. Myndirnar á diskinum eru ætlaðar til skjáskoðunar og eru ekki í prentupplausn. Engin myndabók er innifalin í þessu tilboði.
Kr. 18.900-

Innifalið: Ein 13x18 cm uppstækkun í ramma - DVD diskur til skoðunar í sjónvarpi - Heimasíða í 2 mánuði.

Tilboð 2

Vinsælasta myndatakan. Möguleiki á fataskiptum eða myndataka með systkinum og foreldrum. Tímaviðmið er ein klukkustund og eru öllu jafna teknar um 150 myndir á þeim tíma. Innifalið eru 10 myndir í innbundinni bók, ásamt DVD diski með öllum myndum myndatökunnar í skjáupplausn til skoðunar í sjónvarpi, ein uppstækkun í ca. 13x18 cm stærð í ramma og heimasíða með öllum myndum myndatökunnar. Heimasíðan er vistuð í tvo mánuði. DVD diskurinn inniheldur m.a. sjálfspilandi myndasýningu og hefur verið mjög vinsæll í fermingarveislum. Myndirnar á diskinum eru ætlaðar til skjáskoðunar og eru ekki í prentupplausn. Heimasíðan þjónar þeim tilgangi að leyfa viðskiptavinum sjálfum að velja myndir í bókina og til uppstækkunar. Viðskiptavinir geta áframsent slóðina að heimasíðunni til vina og ættingja.
Kr. 35.000-

Innifalið: 10 myndir í innbundinni bók - Ein 13x18 cm uppstækkun í ramma - DVD diskur til skoðunar í sjónvarpi - Heimasíða í 2 mánuði.

Ath. að myndir í bók og til uppstækkunar verður að velja innan tveggja mánaða. Senda verður inn val fyrir hvort tveggja á sama tíma.

30% afsláttur er veittur af aukaeintökum sömu bókar ef pantað er á sama tíma og val mynda í bók er sent til okkar. Fullt verð bókar er 20.000- miðað við 10 mynda bók.
50% afsláttur er veittur af aukaeintökum sömu DVD diska ef pantað er á sama tíma. Fullt verð á DVD diski með myndum er kr. 2.900-.

Tilboð 3

Fjölbreyttari myndataka með fleiri uppstillingum og fleiri myndum. Möguleiki á fataskiptum og myndataka með systkinum/foreldrum. Tímaviðmið er ein og hálf klukkustund og eru öllu jafna teknar um 250 myndir á þeim tíma. Innifalið eru 15 myndir í innbundna bók, ásamt DVD diski með öllum myndum myndatökunnar í skjáupplausn til skoðunar í sjónvarpi, ein uppstækkun í ca. 13x18 cm stærð í ramma og heimasíða með öllum myndum myndatökunnar. Heimasíðan er vistuð í tvo mánuði. DVD diskurinn inniheldur m.a. sjálfspilandi myndasýningu og hefur verið mjög vinsæll í fermingarveislum. Myndirnar á diskinum eru ætlaðar til skjáskoðunar og eru ekki í prentupplausn. Heimasíðan þjónar þeim tilgangi að leyfa viðskiptavinum sjálfum að velja myndir í bókina og til uppstækkunar. Viðskiptavinir geta áframsent slóðina að heimasíðunni til vina og ættingja.
Kr. 45.000-

Innifalið: 15 myndir í innbundinni bók - Ein 13x18 cm uppstækkun í ramma - DVD diskur til skoðunar í sjónvarpi - Heimasíða í 2 mánuði.

Ath. að myndir í bók og til uppstækkunar verður að velja innan tveggja mánaða. Senda verður inn val fyrir hvort tveggja á sama tíma.

30% afsláttur er veittur af aukaeintökum sömu bókar ef pantað er á sama tíma og val mynda í bók er sent til okkar. Fullt verð bókar er 27.500- miðað við 15 mynda bók.
50% afsláttur er veittur af aukaeintökum sömu DVD diska ef pantað er á sama tíma. Fullt verð á DVD diski með myndum er kr. 2.900-.

Tilboð 4

Umfangsmesta myndatakan. Eins og tilboð 3, en auk þess er hægt er að mynda fermingarbarn með einstaka fjölskyldumeðlimum og stórfjölskyldu, s.s. með afa og ömmu. Tímaviðmið er tvær klukkustund og eru öllu jafna teknar um 300 - 350 myndir á þeim tíma. Ef fjölskyldan er mjög stór er líklegt að ekki sé tími fyrir fataskipti hjá fermingarbarni. Innifalið eru 20 myndir í innbundna bók, ásamt DVD diski með öllum myndum myndatökunnar í skjáupplausn til skoðunar í sjónvarpi, ein uppstækkun í ca. 13x18 cm stærð í ramma og heimasíða með öllum myndum myndatökunnar. Heimasíðan er vistuð í tvo mánuði. DVD diskurinn inniheldur m.a. sjálfspilandi myndasýningu og hefur verið mjög vinsæll í fermingarveislum. Myndirnar á diskinum eru ætlaðar til skjáskoðunar og eru ekki í prentupplausn. Heimasíðan þjónar þeim tilgangi að leyfa viðskiptavinum sjálfum að velja myndir í bókina og til uppstækkunar. Viðskiptavinir geta áframsent slóðina að heimasíðunni til vina og ættingja. Ein stór samsett hópmynd í bókina er innifalin í þessu tilboði.
Kr. 55.000-

Innifalið: 20 myndir í innbundinni bók - Ein 13x18 cm uppstækkun í ramma - DVD diskur til skoðunar í sjónvarpi - Heimasíða í 2 mánuði.

Ath. að myndir í bók og til uppstækkunar verður að velja innan tveggja mánaða. Senda verður inn val fyrir hvort tveggja á sama tíma.

30% afsláttur er veittur af aukaeintökum sömu bókar ef pantað er á sama tíma og val mynda í bók er sent til okkar. Fullt verð bókar er 35.000- miðað við 20 mynda bók.
50% afsláttur er veittur af aukaeintökum sömu DVD diska ef pantað er á sama tíma. Fullt verð á DVD diski með myndum er kr. 2.900-.

Skilmálar

Öll verð miðast við heimilis- og einkanotkun myndanna. Viðskiptavinum er heimilt að birta myndir á heimasíðum sínum án nokkurra tímatakmarka sé það í persónulegum tilgangi, vefsíðan sé í þeirra eigin nafni og ekki gert í ágóðaskyni. Öll önnur fjölföldun háð leyfi höfundar. Notkun mynda á heimasíðum í ágóðaskyni s.s. fyrir fyrirtæki og aðrar opinberar birtingar mynda eru háðar birtingargjaldi. Birtingargjald er breytilegt eftir umfangi birtingar, þ.e. tegundar fjölmiðils, upplagi, stærð myndbirtingar, tímatakmörkum birtingar o.s.frv.
Óheimilt er skv. höfundalögum að breyta myndum nema fyrir liggi skriflegt leyfi höfundar.
 
Fotografika áskilur sér rétt til að breyta verðskrá án fyrirvara.


Hægt er að skipta myndatöku á tvo daga gegn kr. 7.500- aukagjaldi.
Fotografika áskilur sér rétt til að breyta verðskrá án fyrirvara.